Tuesday, December 14, 2004

Gleðileg Jól

Hreindýrin flytja okkur á heimaslóð í dag. Meira verður því ekki krotað á þessa síðu fyrr en á nýju ári.

Hafið þið það gott yfir jólin.

Gleðileg Jól og farsælt komandi ár.

Friday, December 10, 2004

Skósleikir

Ungi maðurinn hefur lagt inn umsókn um að fá að verða 14 jólasveinnin og sækist hann eftir titlinum - Skósleikir. Umsóknin er í vinnslu.

Annars eru við farinn að huga okkur til hreyfings því við höldum á klakann næsta miðvikudag 15. des. Hér er því verið að hamstra gjafir og skrifa nóbels stykki í lange baner.

Ekkert hefur borið á jólasnjó hér en jólabjórinn gutlast hérna út um allt. Í því samhengi er vert að benda á nágrana minn og gæðaeftirlit hans á þessum jólaveigum.